Fyrsti dagur í verknámi
Þá er fyrsti dagur í verknámi búinn og var ekki sem verstur :) Við mættum upp á FSA um 10 leytið og fengum lykla af fataskápunum okkar og þessi æðisgengnu föt sem allir þurfa að vera í þegar þeir vinna á spítala. Við fengum nemaföt sem er hvít með bláum kraga og blárri rönd á ermunum. Mjög smart :) Þið fáið að sjá myndir síðar...
Svo fengum við að elta okkar hjúkrunarfræðinga eða sjúkraliða á okkar deild sem heitir Sel og er öldrunardeild. Við vorum settar fjórar saman á deild sem erum algjörir græningjar og hjúkkurnar urðu sammála um að nota okkur vel :) sem er mjög gott þá lærum við bara meira. En við fengum að spreita okkur á ýmsum auðveldum verkum en fáum öruglega að gera eitthvað meira ögrandi á morgun.
En við ætlum að fara út að labba, það er svo gott veður.... túrilú
Kíkið samt á myndir úr afmælinu, þær eru undir "árshátíð og fleira"... og endilega commentið !
